









Gjafabréf - Alin mælieining í fæðingarlengd
Alin mælieining í fæðingarlengd er falleg og persónuleg eign sem varðveitir minninguna um fyrstu augnablikin í nýju lífi.
Alin er falleg handunnin mælieining úr gegnheilum við með áletruðu nafni, fæðingardegi, þyngd og tíma grafið í hliðina.
Alin er fullkomin skírnargjöf, nafnagjöf eða sem fæðinga- eða afmælisgjöf og myndar fallega eign sem getur fylgt einstaklingnum í gegnum ævina.
Gjafabréfið er upplögð gjöf þegar upplýsingarnar liggja ekki allar fyrir.
Gjafabréfið fæst fyrir Alin með eða án messingenda.
Þegar messingendi er valinn er gegnheilt messing fræst inn í endann á mælieiningunni og myndar það endapunkt á prikinu og áherslu.
Þegar viðarendi er valinn, er mælieiningin skorin í fæðingarlengd og olíuborið.
Handhafi gjafabréfsins getur svo innleyst gjafabréfið hér á vefnum eða sent email á info@agustav.com með upplýsingarnar og fengið sérgert fyrir sig Alin mælieiningu með öllum dýrmætustu upplýsingunum frá þessum fyrstu augnablikum í nýju lífi.
Séu allar upplýsingarnar til staðar má panta Alin mælieiningu í fæðingarlengd hér
Gjafabréfið er sent í pósti. Einnig er hægt að fá gjafabréf sent rafrænt á tölvupósti til útprentunar, þá má nálgast það HÉR.
Ef kosturinn Gjafabréf með sendingu er valinn; er sending á vörunni sjálfri innifalinn í gjafabréfinu og handhafi gjafabréfsins fær vöruna senda heim þegar hann hefur innleyst gjafabréfið.