Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mæliprik í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Alin - mælieining í fæðingarlengd
Tilboð

Alin - mælieining í fæðingarlengd

Varðveittu fyrstu augnablikin í nýju lífi 

Alin er mælieining, sniðin í lengdina sem barnið þitt var við fæðingu, áletruð með öllum mikilvægustu upplýsingunum frá þessum fyrstu augnablikum. 

Þú færð gullfallega handunna mælieiningu úr gegnheilum við með áletruðu nafni, fæðingardegi, þyngd og tíma grafið í hliðina.

Alin er fullkomin gjöf og myndar fallega eign sem getur fylgt einstaklingnum í gegnum ævina.

Mælieiningin er með festingu til að hengja uppá vegg og er fallegt sem veggskraut.


Notaðu formið hér að neðan til að fylla inn fæðingarlengd, nafn, þyngd, fæðingardag- og tíma. Þú getur valið um að fylla inn allar þessar upplýsingar eða einungis hluta þeirra.

Í felliglugganum þar fyrir neðan velurðu viðartegund og frágang.
Þegar messingendi er valinn er gegnheilt messing fræst inn í mælieininguna og myndar það endapunkt og áherslu.
Þegar viðarendi er valinn, er mælieiningin skorin í fæðingarlengd og olíuborið.

Gjafabréf fyrir Alin mælieiningu er góður kostur þegar upplýsingarnar eru ekki allar til staðar, til að mynda sem skírnargjöf/ nafngiftargjöf eða afmælisgjöf.

Með gjafabréfinu gefur handhafi gjafabréfsins upp allar upplýsingar um barnið sjálfur þegar hann innleysir gjafabréfið og velur viðartegund.

Gjafabréfin send í pósti eða rafrænt, til útprentunar. 

Kaupa gjafabréf

Almennur framleiðslutími er um 1-3 dagar frá pöntun og þar til varan er tilbúin til afhendingar / send af stað.

Athugið að framleiðslutími getur dregist, ef þörf er á vörunni fyrir ákveðinn tíma má gjarnan taka það fram í pöntun og við gerum það sem við getum til að ná afgreiðslu fyrir þann tíma. 

Alin mælieining

Vinsamlegast farið vel yfir staðfestingatölvupóstinn við pöntun og tryggið  að allar upplýsingar séu rétt skráðar. Upplýsingarnar sem koma þar fram verða grafnar í mælieininguna. Athugið að upplýsingarnar verða grafnar með eftirfarandi hætti: 
Nafn   /   þyngd g   /   dags.mán.ártal   /   kl tími.mínútur

Ef þú vilt annað fyrirkomulag á skilgreiningunni á mælieiningu þyngdar, framsetningu dagsetningar eða tíma, skal það tekið fram í athugarsemdardálki við kaup eða í tölvupósti eftir kaup á info@agustav.com

- ATH  - áttu Alin fyrir og ert að bæta við? Sendu okkur mynd á info@agustav.com af þeim sem þú átt fyrir svo við getum reynt að velja við sem er sem líkastur þeim sem fyrir er. 

  • -0%
  • Verð 8.990 kr

    Umsagnir

    Umsagnir

    Based on 2 reviews Skrifaðu umsögn