Alin - mælieining í fæðingarlengd
Varðveittu fyrstu augnablikin í nýju lífi
Alin er mælieining, sniðin í lengdina sem barnið þitt var við fæðingu, áletruð með öllum mikilvægustu upplýsingunum frá þessum fyrstu augnablikum.
Þú færð gullfallega handunna mælieiningu úr gegnheilum við með áletruðu nafni, fæðingardegi, þyngd og tíma grafið í hliðina.
Alin er fullkomin gjöf og myndar fallega eign sem getur fylgt einstaklingnum í gegnum ævina.
Mælieiningin er með festingu til að hengja uppá vegg og er fallegt sem veggskraut.
Notaðu formið hér að neðan til að fylla inn fæðingarlengd, nafn, þyngd, fæðingardag- og tíma. Þú getur valið um að fylla inn allar þessar upplýsingar eða einungis hluta þeirra.
Í felliglugganum þar fyrir neðan velurðu viðartegund og frágang.
Þegar messingendi er valinn er gegnheilt messing fræst inn í mælieininguna og myndar það endapunkt og áherslu.
Þegar viðarendi er valinn, er mælieiningin skorin í fæðingarlengd og olíuborið.
Ef það á að panta fleiri en eina Alin þá eru allar upplýsingar fylltar út fyrir fyrstu mælieininguna og varan sett í körfu, þá er ferlið endurtekið fyrir næstu mælieiningu og svo koll af kolli þar til allar mælieiningarnar eru skilgreindar og komnar í körfu.
Viður er náttúrulegt efni og eru engin tvö tré nákvæmlega eins. Ef þú ert að bæta í safnið geturðu sent okkur mynd á info@agustav.com af þeim eintökum sem þú átt fyrir og við reynum eftir fremsta megni að velja við sem líkist þeim sem þú átt fyrir.
Framleiðsla á Alin pöntunum fer fram einu sinni til tvisvar í mánuði. Því getur liðið nokkur tími frá því að varan er pöntuð og þar til hún er tilbúin til afhendingar / send af stað.
Ef Alin er hugsuð sem gjöf, mælum við með að nýta gjafabréfin og tryggja með því að hafa pakka til að afhenda í tíma.

Vinsamlegast farið vel yfir staðfestingatölvupóstinn við pöntun og tryggið að allar upplýsingar séu rétt skráðar. Upplýsingarnar sem koma þar fram verða grafnar í mælieininguna og er ekki hægt að breyta eftir á.
Upplýsingarnar eru settar upp með eftirfarandi hætti:Nafn / þyngd g / dags.mán.ártal / kl tími:mín