Karfa
Kaupa núna
Login
Leitaðu að vöru
Meira
Jólastjarna með nafni
Jólastjarna með nafni
Jólastjarna með nafni
Jólastjarna með nafni
Jólastjarna með nafni
Tilboð

Jólastjarna með nafni


Einlægustu jólin eru þau sem við sjáum með augum barnsins. Ljósin í myrkrinu, ilmurinn af mandarínum, piparkökum og greninálum. Skreytum tré og vöndum okkur. Maulum gott og hlustum á tónlist. 

Litlar hendur hengja hvern muninn á fætur öðrum á tréð. Eftirvænting.

Síðasti munurinn sem ratar á tréð er einstakur. Munur, merktur þér, sem mun fylgja þér frá einu tré til annars. Frá fyrsta trénu til þess síðasta. Augnablikið sem þú hengir þitt jólaskraut er dýrmætt. Merkingin breytist með árunum, en vægið er það sama.

 
Jólastjarnan okkar er úr gegnheillri eik. 
Handunnin af natni og umhyggju. Hvert eintak er sérunnið og hvert handtak vandað. Gegnheill messinghringur prýðir topp stjörnunnar, sem er hengd upp með satínborða. 

1) Áletraðu með nafni einstaklings og fáðu persónulega og þýðingarmikla gjöf sem fylgir einstaklingnum. 

  • Áletrun á einn flöt, til dæmis nafn einstaklings. Textinn er þó valfrjáls og þú getur letrað það sem þér dettur í hug. Athugaðu þó að það rúmast 18 slög vel á flötinn áður en minnka þarf letrið.
  • Áletraðu á tvo fleti. Aðeins er letrað á einn flöt hvoru megin. Tilgreindu hvaða texti á að snúa fram og hver aftur. Sjá skýringarmynd til hliðar. 


2) Með forvalinni áletrun (jólin 2023, Mamma, Pabbi etc) eða án áletrunar (panta/skoða hér): 

Athugið
Jólastjarnan í ár verður framleidd í mjög takmörkuðu upplagi. 

15% afsláttur við kaupum á 3-5 Jólastjörnum. 
20% afsláttur við kaupum á 6 eða fleiri Jólastjörnum. 
Afsláttur reiknast sjálfkrafa í körfu. 

 

  • -0%
  • Verð 7.900 kr

    Umsagnir