





















Borðstofuborð III
Öll borðin hjá AGUSTAV eru unnin eftir máli og sniðin eftir þeim stærðum sem henta þínu heimili best.
Borðstofuborð III er gegnheilt borð í eik, hnotu eða reyktri eik (dökkt), viðarborðin eru sérvalin saman og eru sett saman á þann hátt að þau virðast fljóta ofan á fótunum og bil er milli borðanna. Borðstofuborð III kemur með 2 massívum plankalöppum sem fylgja viðarborðunum og eru einnig með bil á milli sín.
Verð borðs ákvarðast af efnisvali, frágangi, stelli osfv. en grunnverð Borðstofuborðs III í eik er 590.000 kr og grunnverðið í reyktri eik eða hnotu er 690.000 kr.
Hafðu samband og ræðum borðið þitt.
Borðstofuborð
Unnið eftir pöntunum
Borðin eru unnin eftir pöntunum á verkstæði AGUSTAV í Reykjavík. Ef þú pantar í gegnum netið höfum samband innan 48 tíma frá pöntun til að ræða borðið þitt.
Framleiðslutíminn fer eftir verkefnastöðu hverju sinni. Heyrðu í okkur til að fá stöðuna núna eða ef þú hefur spurningar.