

















Lítill bókasnagi
Litli bókasnaginn fæst í eik, reyktri eik og hnotu. Litlum bókasnaga fylgja 6 pinnar/bókamerki. Pinnarnir eru lausir og hægt að færa þá fram og aftur á bakstykkinu. Bækurnar hvíla á lítilli viðarplötu, sem styður við kjölinn, svo blaðsíðurnar haldast heilar og verða ekki fyrir hnjaski. Viðarplötuna má færa örlítið fram og aftur undir bókinni og með því stilla fjarlægð bókarinnar frá bakstykkinu. Þannig má raða misstórum bókum upp og láta þær standa í beinni línu.
Böndin eru úr vaxborinni bómull.
Stærð: 35cm langur x 4cm hár x 2cm djúpur.
Bókasnaginn kemur tilbúinn í gjafaöskju með leiðbeiningum.
Bókasnagi / bókahilla
Að hengja upp snagann
Bókasnaginn kemur með 2 skráargötum á bakhliðinni. Lengd milli skráargatanna er mæld frá miðju annars gatsins að miðju hins og 2 skrúfur skrúfaðar í vegginn með mældri lengd á milli. Þá má leggja bakstykkið á skrúfurnar og þrýsta létt niður til að festa.
Þyngdartakmörk
Við höfum enn ekki uppgötvað þyngdartakmark fyrir bókasnagann. Það fer eftir veggnum sem hann er hengdur á og mikilvægt er að nota réttar skrúfur og tappa (sé þörf á slíku) til að halda sem mestum styrk. Byggingavörubúðir veita aðstoð með rétt val á skrúfum og töppum.
Frí heimsending innanlands.